24.3.2009 | 08:40
Heimsálfurnar
Við í 5.,6. & 7.bekk vorum í þemavinnu (í viku). þemað var heimsálfurnar en við slepptum reyndar Antartíku og Evrópu.
Ég byrjaði í Eyjaálfu þar var mjög gaman & það skemmtilegasta var að búa til boomerang.
Síðan fór ég í N-Ameríku & þar var líka mjög skemmtilegt að læra línudans & að búa til martraðafælu.
Þriðja daginn kynntist ég Asíu þar var skemmtilegast að læra bambusdans sem filippískar konur kenndu okkur & grænmetisútskurð sem tælensk kona kenndi okkur
Næsta dag fór ég í S-Ameríku þar var mjög gaman að gera vinabönd sem er tenging við S-amerískan vefnað og að horfa á myndband af kjötkveðjuhátíðinni í Brasilíu
Svo var komið að Afríku þar var mjög gaman, ég lærði afrískan fiskidans og fengum að smakka banana í kókos.
Þetta var mjög skemmtileg vika
Flokkur: Menntun og skóli | Breytt 27.5.2009 kl. 13:37 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.